Aftur kominn Karlakór í Vesturbyggð !
Gæfa og gengi fylgi ykkur á söngbrautinni.
Bjargmundur Sigurjónsson
5.1.2009 kl. 17:46
Ég óska ykkur gæfu og góðs gengis á nýju ári.Dóri benti mér á þessa síðu,sem er mjög flott.Kannski kemst ég á tónleika hjá ykkur á árinu.Bestu kveðjur.
Við höfum kunnað ákaflega vel við okkur hér á suðursvæði Vestfjarðakjálkans þetta ár sem við höfum búið hér, í yndislegu umhverfi og með dásamlegu fólki.
Líðandi ár hefur verið okkur einstaklega skemmtilegt og fallegt.
Við þökkum, af heilum huga alla viðkynninguna og hlýjar móttökur, um leið og við óskum ykkur gleðilegrar jólahátíðar og farsæls nýs árs. Við hlökkum til að hefja kórstarfið á nýju ári.
Megi almáttugur Guð blessa kórstarfið um ókomin ár.
Þess óska,
Magnús Ólafs Hansson
Elzbieta Anna
og Mariola Kowalczyk
Magnús Ólafs Hansson
29.11.2008 kl. 21:45
Til hamingju Vestra félagar
Mig langar bara að óska ykkur til hamingju með stofnun Karlakórsins Vestra, gangi ykkur sem best í söngstarfinu,með kveðju á suður-firðina. Sigþór Gunnarsson Þingeyri.
Sigþór Gunnarsson
28.11.2008 kl. 0:53
Til hamingju, karlar í kór !
Sendi ykkur mínar bestu hamingjuóskir.
Megi lukkan leiða' ykkur og hamingjan hossa, um ókomin ár.
Vonast til að heyra ykkur og sjá sem fyrst.
Bestu kveðjur,
Ísleifur Ingimarsson - frá Bíldudal ;o)
E.s.: Ég er viss um að það eru einhverjir burtfluttir "Vestrar" sem væru til í að vera "fjarfélagar", þó ekki væri nema til að styrkja kaffisjóðinn, með einhverju lítilræði, á þessum síðustu og verstu. Kv. Ísleifur.
Ísleifur Ingimarsson
10.11.2008 kl. 17:53
Til hamingju Karlakórinn Vestri !
Góðu vinir í Karlakórnum Vestra.
Hjartanlega til hamingju með nýja heimasíðu. Gangi ykkur allt í haginn í komaqndi framtíð.
Söngurinn og tónlistin eflir sálina.
Góðar kveðjur til ykkar allra.
Magnús Ólafs Hansson
Patreksfirði